Jább, þá er ég búin að fara í vigtun 2 og
gekk hún bara ágætlega. Markmiðið mitt var að léttast
allavega um 1 kg og mér tókst það. Ef ég fer yfir 1 kg er það
bara gasalega gott allt saman. Ég ætla mér að ná að léttast
um 10 kg fyrir 18 ágúst. Vonum að það gangi nú
vel.
Nú er komið frí hjá mínum vigtunarráðgjöfum, sem
er nú allt í lagi. Hef áður verið á dansa þegar það er frí. Vonast
til þess að ná 5-6 kg. Allt í lagi að vera smá bjartsýn, ekki satt

Annars er víst komin önnur vigt hjá þeim, mælir
BMI og fitu% en var samt ekki sátt við fitu% þar sem að þegar ég
var sem þyngst var ég ekki svona há. Var 36% og síðast þegar ég fór
í mælingu hjá einkaþjálfara var ég komin niður í 29%. En Danski
segir að ég sé 45,2% í fitu. En þetta fer allt eftir því hvernig
þetta er mælt og bla bla bla.
Jæja, ég ætla að halda áfram að vera úti í
sólinni.
ÞAÐ ER ÆÐISLEGT VEÐUR ÚTI 