Síðast þegar ég skrifaði í sambandi við LFL var dagur 15. Hef
skrifað 2 færslur síðan en ekki talað um LFL. Nema hvað að nú er
kominn dagur 34 hjá mér. Í rauninni ætti ég að vera komin á dag 39
eða svo
. En hver er svo sem að telja hehe.
Ég er búin að vera að sparka ansi fast í rassinn á mér
undafarið. Get ekki setið lengur út af því og þess vegna er ég búin
að vera dugleg í ræktinni. Finnst hræðilegt þegar maður dettur
svona niður. Hef reyndar ekki verið dugleg í DDV en það er svona
allt í lagi þannig séð. Hef nefnilega ekki verið að þyngjast neitt
og er viss um að það sé líka út af ræktinni. Á þriðjudaginn fór ég
í ræktina. Tók 20 min hlaup og svo eftir partinn. Endaði á því að
fara svo í gufu og heitapottinn. Það var ekkert smá æðislegt. Hef
hingað til ekki farið í hann og ég sem er búin að vera með árskort
í ræktinni. Ætla sko að nýta mér þetta miki oftar núna. Maður
verður svo endurnærður og æðislegur.
Fór svo í ræktina í gær. Tók 20 min hlaupabrettti, tók svo neðri
og eftri partinn til skiptis. Ekkert smá dúleg sko. Fór ekki í
þetta sinn í gufu eða pottinn. Var líka bara ein og verð að segja
það að mér finnst ekki neitt voðalega gaman að fara ein í ræktina.
Skil það ekki.
Í kvöld mætti ég einu sinni enni. Ætlaði að tak 20 min bretti en
sú sem fór með mér var að drepast í hnénu svo að ég var bara í 10
min því við fórum svo í gufu og pottinn. Held ég sé að verða gufu
og pottaafíkill, hef reyndar alltaf verið pottafíkill.
Við komum okkur svo saman um að kíkja í ræktina í fyrramálið
þegar það opnar (6.30) þar sem að hún er að fara að vinna um 8 og
ég í rvík. Ætla að byrja á því að fara á brettið í 20 min og svo að
taka fætur.
Jamm, svona eru málin hjá mér þessa dagana. Verður spennandi að
sjá hvernig dagurinn endar á morgun. Aldrei að vita nema ég skelli
inn nokkrum orðum eða svo